skemmtileg frétt
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/08/17/sundlaugin_haekkar_um_112_milljonir/
Fyrir það fyrsta er stórskemmtilegt, og fyndið, að Álftanes þurfi að borga meira fyrir þessa sundlaug. En burtséð frá því – þá er dómurinn fáránlegur.
Til hvers gerir fólk eiginlega samininga? Það er eitt ef hlutar samnings eru dæmdir ólöglegir (til að mynda vísitölutenging við erlenda gjaldmiðla, eða ef við gerum samning um sölu á landa) en í þessu tilfelli er talað um forsendubrest út af því að verðbólga var meiri en menn gerðu ráð fyrir. Semsagt, ef ég er launþegi og ég sem um ákveðin laun en svo verður verðbólga miklu hærri en ég gerði ráð fyrir – er þá forsendubrestur og ég fæ launahækkun? En hvað ef ég keypti mér hús á verðtryggðu láni (í ISK) en svo varð verðbólga miklu meiri en ég gerði ráð fyrir… fæ ég þá afslátt?
steikt.



