Þegar ég var lítill þá reyndi maður stundum að hringj
a á Rás 2 eða Bylgjuna til svara spurningum í von um einhver svakaleg verðlaun. En mér tókst aldrei að ná í gegn – og á endanum var ég farinn að halda að útvarpsverðlaun væru tilbúningur sem enginn fékk, en útvarpsstöðin lét eins og einhver hefði unnið til að láta almenningi líða vel.
Þess vegna fannst mér meira en sjálfsagt að leyfa Andreu að hringja á útvarpsstöð fyrir nokkrum dögum. Við vorum að keyra niðrí bæ og það var auglýsing í útvarpinu “meet your favorite Disney star” (að ég held, ég var annars ekkert að hlusta). Það heyrðist í Andreu “má ég hringja?”. Ég sagði við Ernu… “Leyfðu henni bara að hringja, það svarar enginn”.
Eftir smá stund, þá heyrist í Andreu “Mamma, hérna er síminn – he wants to talk to my mom”.
Andskotinn!
Í dag er Andrea semsagt að fara í áheyrnarpróf (að við höldum). Myndin hér að ofan er önnur myndanna sem hún tekur með sér. Það eru um 200 krakkar sem mæta, og þeir sem verða valdir munu leika í sjónvarpsauglýsingu með Selena Gomez. Erna fær heiðurinn að leika hlutverk sviðsmóður, meðan við strákarnir leikum okkur.
Ef Andrea verður valin þá er planið er að hætta í vinnunni, og sitja fullur heima allan daginn á meðan Erna keyrir um Bandaríkin með börnin í áheyrnarpróf. Svít!
Posted by hjalti 


