Að tapa sólarhring..

November 23, 2009

Núna er klukkan sirka 12.30 á hádegi, en ég veit ekki hvort það er sunnudagur eða mánudagur. Undir venjulegum kringumstæðum væri auðvelt að leysa þetta vandamál, kíkja á klukkuna..

Vandamálið er að ég í flugvél, í 35þúsund feta hæð – og er að fara yfir daglínu. Austan megin er sunnudagur, en vestan megin er mánudagur – klukkan er 12.30 á báðum stöðum.

Kannski er þetta nauðaómerkilegt, þetta er eitthvað sem maður hefur vitað alla tíð – en þetta er í fyrsta skipi sem ég flýg yfir daglínuna. Alveg gríðarlega ruglingslegt fyrirbæri.

Ferðinni er heitið til Peking, þar sem ég mun sitja á fundum í nokkra daga. Líklega verður ekki mikið skoðað í ferðinni utan vestrænna fundar- og hótelherbergja. Ef ég er heppinn þá kaupi ég kannski Starbucks kaffi, svona í tilefni þess að ég bý 20 mínútur frá höfuðstöðvunum. Gríðarlega gáfulegt, fljúga í 14 klst til að stija á fundi.

Talandi um gáfulega hluti, þá flaug ég niður til San Francisco til að fljúga til Peking (beint flug frá Seattle er bara 3svar í viku).. en það þýddi að ég flaug fram og til baka. 6 klst frá brottför flaug ég aftur framhjá Seattle. Núna erum við að fljúga yfir Beringssundið – ég sé bæði Rússland og Alaska fyrir neðan.


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.